Umsagnir viskiptavina

Hér að neðan getur þú lesið umsagnir viðskiptavina okkar. 

Umsagnir um skíðagöngunámskeiðin okkar í Tékklandi undanfarna tvo vetur í umsjón Auðar K. Ebenezersdóttur og Óskars Jakobssonar

Frábær og stórkostleg ferð í alla staði, toppar allt sem ég hef farið í || Allt upp á 10! Frábær ferð i alla staði, mæli með þessu við alla sem ég hitti || Þetta var mjög góð ferð og kennararnir frábærir og jákvæðir, takk fyrir mig! || Kennararnir voru mjög góðir, kunna sitt fag augljóslega og komu til móts við mismunandi þarfir ólíkra einstaklinga í hópnum

Umsögn um Töfra Gardavatnsins, 6. - 14. júní 2016. Fararstjóri Brandur Jón Guðjónsson

Dásamleg ferð. Brandur er einstakur fararstjóri sem sér til þess að allir njóti. Takk Íslandsvinir og takk Brandur fyrir ógleymanlega ferð. 

Rannveig Sigfúsdóttir

Umsögn um Dónárdraum, 8. - 15. júní 2015. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

"Þetta var skemmtileg ferð. Fallegt og fjölbreytt umhverfi með mikla sögu. Brandur farastjóri stóð sig með mikilli príði og allt skipulag ferðarinnar frábært. Ég mæli með þessari ferð og vil þakka ferðaskrifstofuni Íslandsvinum fyrir mig." 

Grétar William Guðbergsson

Umsögn um hjólaferð um Kvarnerflóann í Króatíu, sept. 2014. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

„Þessi ferð var samfellt ævintýri frá upphafi til enda. Fjölbreyttar, fallegar og skemmtilegar hjólaleiðir við allra hæfi. Það var virkilega gaman að búa í skútunni og þar var yndisleg stemming. Það var líka dásamlegt þegar akkerum var kastað í fagurbláum flóa og fólki boðið að synda. Að synda í tærum sjó þar sem enginn er á ferð nema þú og þínir ferðafélagar er upplifun út af fyrir sig og auðvitað mjög hressandi líka. Osturinn á eyjunni Pag er líka ógleymanlegur. Frábær upplifun og frábært frí.“

 

Anna Sigríður Vernharðsdóttir og Auðunn Páll Sigurðsson.

Ágætu starfsmenn Íslandsvina !
Okkur langar til að þakka fyrir ógleymanlega  ALPARÓSAFERÐ 10-19/8. 
algjör snilld.
Stór hluti af þessari snilld er þessi frábæri fararstjóri sem Ása María er.
Hún hefur gott skipulag á hlutunum og mikla hæfileika til að miðla fróðleik og þekkingu
sem við kunnum vel að meta. Auk þess er hún bráðskemmtileg og með húmorinn í lagi
-- ef þið hafið ekki vitað það--  
Farkostur  og hótel voru af bestu gerð  og bara allt upp á það besta.
Við óskum Íslandsvinum alls hins besta og vonum  að við eigum samleið síðar.
Góðar kveðjur,
Stína, Högni
Döbba, Elli
Júlla, Trausti
Búbba og Þröstur

Umsögn um Dónárdraum, 13. - 23. júní 2013. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

"Vil þakka ykkur fyrir skemmtilega hjólaferð 13-23 júni. Allt stóðst eins og stafur á bók, og þessi ferð verður ógleymanleg. Að hjóla eftir þessum hjólastígum í góð veðri, gegnu þessa litlu bæi með hellulögðum götum,litlum kaffihúsum og mikilli sögu, sem farastjórinn Brandur Jón fræddi okkur um. Löngum dölum með stoppi á bóndabæjum og setjast niður og fá sér nýtínda ávexti, heimabakað brauð og osta. Farastjórinn stóð sig frábærlega og hafið þið þökk fyrir frábæra ferð."

Margrét Gunnarsdóttir

Umsögn um ferðina „Alparósir“ 10.-19. ágúst 2010. Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir

„Ágætu starfsmenn Íslandsvina !
Okkur langar til að þakka fyrir ógleymanlega  ALPARÓSAFERÐ 10-19/8. algjör snilld.
Stór hluti af þessari snilld er þessi frábæri fararstjóri sem Ása María er.
Hún hefur gott skipulag á hlutunum og mikla hæfileika til að miðla fróðleik og þekkingu
sem við kunnum vel að meta. Auk þess er hún bráðskemmtileg og með húmorinn í lagi
-- ef þið hafið ekki vitað það--  
Farkostur  og hótel voru af bestu gerð  og bara allt upp á það besta.
Við óskum Íslandsvinum alls hins besta og vonum  að við eigum samleið síðar.

Góðar kveðjur,
Stína, Högni
Döbba, Elli
Júlla, Trausti
Búbba og Þröstur“


Umsögn um ferðina „Gönguferð - Gardavatn“ 5.-12. júní 2010. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

„Við vorum mjög ánægðar með Gardavatnsferðina í júní. Brandur er frábær fararstjóri, hugsunarsamur, hlýr og einstaklega hjálpsamur. Ég og dóttir mín gefa honum hæstu einkunn.   

Magðalena“


Umsögn um ferðina "Gardavatnið - hjólaferð" 21. - 28. ágúst 2010. Fararstjóri: Brandur Jón Guðjónsson

Þrátt fyrir að hafa til skamms tíma notað reiðhjól sem daglegan samgöngumáta var hugmyndin um hjólaferð á erlendri grundu huglæg áskorun.  Gat verið hvíld í því að þjarkast um dögum saman á hjóli í stað þess að liggja út af í sólinni?  Á kynningu um tilhögun ferðarinnar kom ljós að þrátt fyrir þétt skipulag skyldi heilbrigð skynsemi ráða för.  Seglum yrði hagað eftir vindi og ferðalangar ættu að lifa ferðina í stað þess að hún lifði þá.

Riva del Garda hjólaferðinni verður vart lýst fyrir þeim sem ekki hafa upplifað ferðamáta af þessu tagi á eigin skinni.  Við komuna á áfangastað vék blanda eftirvæntingar og spennu fljótt fyrir öryggis- og frelsistilfinningu.  Líkamlegri hreyfingu fylgir andleg vellíðan og viðmót allra var gott.  Nálægðin við náttúruna og daglegt líf heimamanna líkist því að anda að sér sögu í stað þess að lesa hana.  Landslagið einstakt og að sama skapi veitingar í mat og drykk.  Fólk á miðjum aldri urðu sem börn í sjálfskipuðu eigin ævintýri.  -  Ferðin hefur haft þann eftirmála helstan að maður er knúinn til slíkrar farar á ný.

GRB.

| More
Unable to find template: simpleitem simpleitem1