Njóttu þín í Neukirchen | |
8 dagar / 7 nætur | |
hámark 25 manns |
|
Fararstjóri: Helmut Maier |
Prentvæna útgáfu af upplýsingum um ferðina má fá hér
Get nú ekki annað en sent ykkur línu til að segja ykkur að skíðaferðin okkar fór sko LAAANGT fram úr væntingum, þar sem fararstjórinn hann Helmut gjörsamlega dró rauða dregilinn á undan okkur alla ferðina!! Alltaf mættur við lyftuna á morgnana og skíðaði með okkur allan daginn og þekkir hverja þúfu betur en lófan á sér!! Og alltaf mættur í skíðabúðina ef eitthvert okkar vantaði eitthvað þar, til að aðstoða með það!! Fylgdist svo með að ALLIR kæmu niður heilir eftir daginn!! Það ættu allir að fara amk. eina skíðaferð með Helmut, hann fær 10 ********** af 5 möguleikum
Umsögn um Neukirchen ferðina okkar í janúar 2018 og þátt Helmut í henni :-)
Við gætum allt eins kallað þessa ferð „Helmut á heimavelli“ því að okkar góði fararstjóri er frá Neukirchen og þó að hann hafi búið á Íslandi í áratugi þá þekkir hann samt hverja þúfu og hvern skafl á svæðinu og gerir þetta að frábærri skíðaferð! Hann er mikill skíðamaður og hefur m.a. keppt á skíðum hér heima og erlendis og verið landsliðsþjálfari Íslands.
Helmut fylgir hópnum upp á Wildkogel sem er flott skíðasvæði sem að býður upp á gott skíðafrí fyrir hvern sem er!
Hefðbundin svigskíðun er auðvitað í forgrunni, en svo eru líka mjög flottar gönguskíðabrautir á svæðinu; hægt að leigja fjallaskíðabúnað einn dag eða tvo og bæta nokkrum toppum í safnið; fara með skíðastrætó yfir á næstu svæði o.s.frv. - að ógleymdri glæsilegri upplýstri 14 km langri sleðabraut, þeirri lengstu í heimi, svo þar er hægt að upplifa frábæra kvöldskemmtun!
Og svo þekkir Helmut auðvitað ýmsa áhugaverða staði aðra sem að hægt er að skreppa til; frábært safn og sýningar um svæðið og Hohe Tauern þjóðgarðinn í Mittersill, bæjarferð og/eða skíðun í og við Zell am See o.fl. o.fl.
http://www.nationalparksaustria.at/en/pages/hohe-tauern-60.aspx
http://www.nationalparkzentrum.at/Home.1.0.html?L=0
Dvalið verður á hótel Gassner, mjög vel staðsettu og flottu fjögurra stjörnu hóteli í Neukirchen. Skíðarútan stoppar fyrir utan hótelið og þaðan er aðeins uþb. 3 mín. akstur (ókeypis) yfir að aðallyftu Wildkogel svæðisins, og svo endar ein af skíðabrekkunum ofan úr fjalli heim við hótelgarðinn.
http://www.hotel-gassner.at/en
http://www.hotel-gassner.at/en/wellness-hotel-neukirchen
Neukichen er fallegur staður og með mjög gott skíðasvæði sem að hentar vel allri fjölskyldunni, og ef vilji er til þess að skipta aðeins um gír þá er á svæðinu lengsta upplýsta sleðabraut í heimi, heilir 14 km, sem gaman er að bruna eftir að afloknum góðum skíðadegi...
https://www.wildkogel-arena.at/en/winter-holidays
Ferðaáætlun:
Dagur 1 – laugardagur, 26. janúar
Munchen - Neukirchen
Flogið með Icelandair kl. 07:20 til Munchen, áætluð lending þar kl. 12:05 og við tekur uþb. 3 klst akstur upp til Neukirchen.
Dagur 2 til 7 – sunnudagur til föstudags, 27. janúar til 1. febrúar
Skíðun og skemmtilegheit
Þessir dagar fara í útiveru, samveru og góðar upplifanir! Spenna og stuð, slökun og rólegheit, allt eftir óskum hvers og eins til þess að eiga gott og nærandi vetrarfrí. Fararstjórinn aðstoðar eftir þörfum, gefur góð ráð hverjum þeim sem þiggja vill varðandi skíðun, skíðasvæðið og áhugaverða staði í og við bæinn, og er til staðar ef þurfa þykir...
Dagur 8 – laugardagur, 2. febrúar
Heim á leið...
Strax eftir morgunmatinn verður ekið til flugvallarins, áætluð brottför 13:05 og lending á Íslandi 16:00
Þjónusta & verð
Innifalið í verði ferðar: |
Flug |
26.01.2019: Flug frá Keflavík til Munchen 07:20 – 12:05 02.02.2019: Flug frá Munchen til Keflavíkur 13:05 – 16.00 Athugið að flugtímar geta breyst |
||
Gisting |
7 nætur á Hotel Gassner, góðu 4**** hóteli í Neukirchen |
|||
Matur |
Morgunverður: |
Innifalið – 7 morgunverðir |
||
Hádegisverður: |
Ekki innifalið |
|||
Kvöldverður: |
Innifalið – 7 kvöldverðir |
|||
Ferðir |
Akstur að og frá flugvellinum í Munchen.
|
|||
Fararstjórn |
Helmut Maier |
|||
Ekki innifalið: |
Hádegisverður Drykkir með kvöldmat Akstur á milli skíðasvæða og bæja umfram það sem að er ókeypis frá hótelinu að aðal lyftum svæðisins Aðgangseyrir á söfn o.þ.h. Annað það sem ekki er talið upp í „innifalið” Skíðapassar - hægt er að velja um margar mismunandi útgáfur eins og sjá má hér Í samráði við Helmut er hægt að velja þá útgáfuna sem að hentar best fyrir hvern og einn
|
|||
Verð: |
Verð á mann í tveggja manna herbergi |
239.900,- | ||
Verð á mann í eins manns herbergi |
259.900,- |
|||
Greiðslur og gjalddagar: |
Staðfestingargjald: Staðfestingargjald ISK 75.000 þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar af hálfu viðskiptavinar kemur. |
Lokagreiðsla: Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%. |
||
Ábendingar: Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð sex vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg og mun þá endurgreiða að fullu. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gilda almennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar.
|
||||
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is
Farþegar í ferðum Íslandsvina fá sérkjör í útivistarvöruverslunum „Fjallakofans“ í Hafnarfirði og Reykjavík.
Unable to find template: simpleitem simpleitem1