![]() |
ADRENALÍNFERÐ - KLETTAGANGA "VIA FERRATA" - FLÚÐASIGLING - FJALLAHJÓLUN |
8 dagar / 7 nætur |
|
Lágmarks fjöldi 6 manns, hámark 12 | |
Fararstjóri Hilmar Már Aðalsteinsson |
Adrenalínferð sem samanstendur af þremur mismunandi áskorunum á sex dögum; „Via Ferrata“ klettagönguleið í Brenta Dolomítafjöllunum; flúðasiglingu á Noce ánni og fjallahjólaferðum.
Ferðin hefst með því að fara á þremur dögum Bocchette leiðina, vinsælustu klettagönguleið (Via Ferrata) Brenta Dolomítafjallanna, frá Grosté skarðinu að Brentei fjallaskálanum, hrikalega flott leið um bratta og tæpa stíga, einstigi, stiga o.þ.h.!
Síðan tekur við spennandi flúðasigling eftir Noce ánni, en National Geographic telur þetta eina af 10 bestu ám í heimi til æfinga í flúðasiglingum!
Að lokum verður farið á fjallahjólum tvær mismunandi leiðir; sú fyrri eftir Val Meledrio þar sem farið er m.a. um engi og skóglendi í Adamello Brenta garðinum, og endað í Daolasa, þar sem að lokamót UCI MTB World Cup fjallahjólakeppnanna 2017 fór fram. Seinni hjóladaginn verður farið um hjarta Val di Rabbi í stórkostlegu Alpa landslagi, en þar eru einnig heimkynni glæsilegra hjartardýra.
„Via Ferrata“ (ítalska) er samheiti yfir sérhæfðar gönguleiðir í fjalllendi þar sem að öryggisvírar, stigar og þrep eru notuð til þess að komast um, oft á tíðum, mjög tæpa stíga eða þverhnípta hamraveggi, og á uppruna sinn í Dolomitafjöllunum á Ítalíu í fyrri heimsstyrjöldinni. Við höfum kosið að kalla þetta „klettagönguleiðir“ í þessu skjali
Allir þátttakendur eru með hjálm á höfði og í klifurbeltum með sérstökum öryggislínum til þess að festa sig við öryggisvíra.
Tvær nætur verður gist í fjallaskálum á gönguleiðinni, en fimm nætur verður dvalið á góðu 3*** hóteli í Dimaro.
Mjög mikið innifalið!
Íslenskur fararstjóri verður Hilmar Már Aðalsteinsson, en á hverri áskorun verða sérhæfðir leiðsögumenn sem að bera megin ábyrgð á sínum hluta ferðarinnar
Dagur 1 - laugardagur 25. ágúst
Munchen – Val di Sole
Flogið með Icelandair til Munchen. Áætluð lending kl. 13:05 og við tekur rútuferð þaðan yfir í Val di Sole dalinn í norðurhluta Ítalíu.
Dagur 2 – sunnudagur 26. ágúst
Via Ferrata – klettagönguferðin hefst
Farið með rútu yfir til Madonna di Campiglio þar sem að fjallaleiðsögumaðurinn bætist í hópinn. Þaðan er farið með kláfi upp í Grosté skarðið (2.442 m.y.s.), en þar hefst Benini stígurinn sem að liggur milli Grosté tindsins og Campanile Vallesinella þar sem að leiðin liggur utan á fjöllunum. Þaðan til Bocca del Tuckett, undir Sella tindinum og þaðan til Tucett fjallaskálans (2.261 m.y.s.) þar sem að gist verður fyrstu nóttina.
+800m / -870m / 5 klst.
Dagur 3 – mánudagur 27. ágúst
Brenta Dolomítarnir – Sosat stígurinn
Eftir Sosat klettagöngustígnum verður farið í áttina að Alimonta fjallaskálanum (2.580 m.y.s.) sem er í Vedretta degli Sfulmini, í hrikalegum hamrasalnum miðjum...
+300 / -0 / 6 klst.
Dagur 4 – þriðjudagur 28. ágúst
Brenta Dolomítarnir – Bocchette stígurinn
Örlítið uppávið til Bocca d‘Armi og að upphafi klettagönguleiðarinnar um miðju Bocchette, sem er, að öðrum ólöstuðum, fallegasti hluti leiðarinnar. Eftir u.þ.b. 4 klst. verður komið til Bocca di Brenta, og þaðan verður farið niður til Brentei fjallaskálans (2.182 m.y.s.). Síðan upp í móti framhjá Casinei skálanum til Vallesinella við Madonna di Campiglio. Þaðan í bíl yfir á hótelið í Val di Sole.
+700 / -1.700 / 6 klst.
Dagur 5 – miðvikudagur 29. ágúst
Flúðasigling á Noce ánni
Þennan daginn verður farið í u.þ.b. 3 klst. flúðasiglingu eftir Noce ánni, en hún er talin ein af 10 bestu ám í heimi í flokki „white water rafting“.
Dagur 6 – fimmtudagur 30. ágúst
Á fjallahjóli um Val di Sole
Þennan dag verður farið í krefjandi ferð á fjallahjólum um svæðið í nágrenni hótelsins. Leiðin verður að einhverju leyti valin í takt við hópinn, en gæti t.d. verið svona: Dimaro (766 m.y.s.) – Val Meledrio – Malga Mondifrá (1.600 m.y.s.) – Malga Vigo (1.782 m.y.s.) – Malga di Dimaro (1.670 m.y.s.) – Folgarida (1.400) – Malghetto di Almazzago (1373 m) – Intermedia di Daolasa (1.370 m) – Daolasa (814 m)- Dimaro (766 m)
Erfiðleikastig: Miðlungs
+ 1000 m/- 1.000 m / 6 klst.
Dagur 7 – föstudagur 31. ágúst
Á fjallahjóli um Stelvio þjóðgarðinn
Nú verður hópnum skutlað með hjólin yfir í Val di Rabbi og tekinn góður hringur um Stelvio þjóðgarðinn, en seinnipartinn verður svo ekið með hópinn aftur á hótelið. Dagleiðin gæti t.d. verið svona: Terme di Rabbi (1.200 m) - Malga Cercen (1.969 m) – Malga Monte Sole (2.047 m) – Malga Fratte Alta (1.867 m) - Malga Maleda Bassa (1.726 m) – Malga Fratte Bassa (1.482 m) - Ponte Sospeso (1.366 m) – Terme di Rabbi (1.200 m)
Erfiðleikastig: Miðlungs
+ 900 m/- 900 /6 hours
Dagur 8 – laugardagur 1. september
Heim á leið...
Lagt snemma af stað upp til Munchen flugvallar. Flugið heim er kl. 14:05, áætluð lending á Keflavíkurflugvelli kl. 16:00
<> <> <>
MJÖG MIKIÐ INNIFALIÐ!
Innifalið í verði ferðarinnar:
Flug og flugvallarskattar
Akstur til og frá flugvelli
Allur annar akstur og flutningar sem þarf vegna dagskrár ferðarinnar (kláfur, akstur vegna gönguferðar, flúðasiglingar og hjóladags)
Gisting í fimm nætur í bænum Dimaro – hótel Belfiore ***S http://www.hotelbelfiore.it/en/
Gisting í tvær nætur í fjallaskálum á klettagönguferðinni – kojur í sal, svefnpokapláss (lakpoki og teppi)
Þriggja daga klettagönguferð „Via Ferrata“ um Brenta Dolomitafjöllin í fylgd með einum eða tveimur sérhæfðum enskumælandi UIAGM fjallaleiðsögumönnum (fer eftir stærð hópsins)
Tveggja daga leiga á sérhæfðum klettagönguferðabúnaði (öryggishjálmur, klifurbelti, öryggislína)
Tveggja daga hjólaferð með enskumælandi leiðsögumanni
Tveggja daga leiga á reiðhjólum
Flúðasigling með sérhæfðum leiðsögumanni/mönnum
Hálft fæði á gististöðum (kvöldverður og morgunverður)
Hádegishressing í skálum á hjóladögunum
Nesti (miðdagshressing) á göngudögunum
Ekki innifalið:
Lakpoki til nota í fjallaskálunum
Hádegis/miðdegishressing á flúðasiglingardeginum
Drykkir með hádegis og kvöldverðum
Annað það sem ekki er talið upp í „innifalið“
<> <> <>
Þjónusta og verð:
Innifalið í verði ferðar: |
Flug |
25.08.2018: Flug FI 532 Keflavík - Munchen, brottför 07:20 lending 13:05 01.09.2018: Flug FI 533 Munchen – Keflavík, brottför 14:05 lending 16:00 Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst. |
||
Gisting |
5 nætur á hóteli og 2 nætur í fjallaskálum (kojur) |
|||
Matur |
Morgunverður: |
Innifalið – Alla morgna |
||
Hádegisverður: |
Nestispakki á gönguleið (3 dagar), hádegishressing á hjóladögunum (2 dagar) |
|||
Kvöldverður: |
Innifalið – samt. 7 kvöldverðir í fjallaskálunum og á hótelinu |
|||
Ferðir og flutningar |
Allur akstur og aðrir flutningar sem þarf til að fylla inn í áætlun ferðar.
|
|||
Fararstjórn |
Hilmar Már Aðalsteinsson Fundur með fararstjóranum fyrir ferðina |
|||
Ekki innifalið: |
Drykkir með kvöldmat á gististöðunum / Aðgangseyrir á söfn o.þ.h. / Hádegishressing á flúðasiglingardeginum / Lakpokar til að nota í kojum 2 nætur í fjallaskálunum / Annað það sem ekki er talið upp í „innifalið” |
|||
Verð: |
Verð á mann í tveggja manna herbergi |
299.900,- staðgreitt |
||
Verð á mann í eins manns herbergi |
339.900,- staðgreitt |
|||
Greiðslur og gjalddagar: |
Staðfestingargjald: Staðfestingargjald ISK 75.000 þarf að greiða innan 7 daga frá pöntun. Athugið að staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt ef til afbókunar af hálfu viðskiptavinar kemur. |
Lokagreiðsla: Til að staðgreiðsluverð gildi þarf að greiða ferð að fullu í síðasta lagi 8 vikum fyrir brottför, annars hækkar verð um 5%. |
||
Ábendingar: Lágmarks þátttaka er 6 manns. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð átta vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg og mun þá endurgreiða að fullu. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd. Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er aðili að SAF (Samtök ferðaþjónustunnar, sjá www.saf.is) og því gilda almennir skilmálar samtakanna um allar ferðir ferðaskrifstofunnar, auk þess sem viðkomandi flugfélag getur verið með sína skilmála til viðbótar. |
||||
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9500 eða sendið fyrirspurn á info@explorer.is
Farþegar í ferðum Íslandsvina fá sérkjör í útivistarvöruverslunum „Fjallakofans“ í Hafnarfirði og Reykjavík.